|
Ferðskrifsstofa Austurlands hefur komið að fjölmörgum verkefnum með Austurneti, t.d. í kúlu er varðar vetrarferðmennsku sem hefur getið af sér fyrirtækið Austurför ehf. Eins hefur Austurnet sinnt verktöku fyrir Ferðaskrifsstofuna við bókunarvinnu fyrir innanlandsflug. Ferðskrifstofan hefur leigt vinnusvæði af Austurneti frá því í September 2009. |
|||
|
Hugbúnaðarfyrirtækið Rational Network er eingöngu með sinn hugbúnað keyrandi erlendis. Aðallega í Noregi, Belgíu, Hollandi og Bretlandi. Þar eru tveir starfsmenn í dag sem sinna hugbúnaðargerð. Austurnet hefur verið í samstarfi með RN í verkefni í Noregi. Rational Network hefur leigt hluta af húsnæði Austurnets frá því í júlí 2009.
|
|
||
![]() |
Hugbúnaðarfyrirtækið HugurAx hefur verið í mjög nánu samstarfi með Austurneti frá upphafi. Það má segja að velvilji þeirra gagnvart verkefninu hafi á ýmsan hátt hjálpað til við framvindu þess. Þá sérstaklega með því að gefa ákveðnum starfsmönnum HugarAx svigrúm til að vinna að verkefninu. HugurAx flutti svo starfsstöð sína í sama húsnæði og Austurnet, en þrír starfsmenn unnu í starstöðinni á tímabili. HugurAx hefur leigt 2-3 starfstöðvar af Austurneti frá því í apríl 2008. |
|
|
|
Austurnet hefur frá upphafi verið í góðu samstarfi við Þekkingarnet Austurlands. Hefur Austurnet meðal annars séð um mikið af tölvukennslu og útvegað kennara allt frá Hornafirði til Vopnafjarðar. Hafa 10-15 manns komið að kennslu á vegum Austurnets. Kennsla hefur því verið einn stórum þáttum í uppbyggingu Austurnets.
|
|
||
|
Ferðaþjónusta bænda og Austurnet hafa unnið að verkefninu Gistibók frá því í desember 2008. Hlutverk Austurnets hefur verið forritun og hönnun á Gistibókinni, en hún er nú í almennri notkun meðal aðila sem eru innan ferðaþjónustu bænda. Gistibókin er enn í þróun. |
|||
![]() |
AFL starfsgreina félag og Austurnet hafa verið miklu samstarfi frá því haustið 2008. Hefur það falið í sér hönnun og forritun á lausnum, sem hafa það megin markmið að samþætta þau kerfi sem AFL er að vinna með. Bæði með því að byggja gagnabrýr á milli kerfa í miðlægan grunn og ekki síst í að byggja upp viðmót í gegnum sharepoint. Eins hafa verið unnin samstarfsverkefni í gegnum námsgagnagerð og auglýsingar. |
||
|
Mánatölvur hafa verið í samstarfi við Austurnet frá upphafi og er reyndar einn af stofnendum fyrirtækisins. En MT Bókhald hefur séð um allt bókhald fyrir Austurnet.
|
|||

