Austurnet
Dyrfjöll Náttúrugarður - Geopark

Austurnet tekur nú þátt í verkefni er varðar stofnun náttúrugarða við Dyrfjöll. Markmiðið er að verða hluti af Geopark keðju. Verkefnið er unnið sem kúla í gegnum kúlu verkfæri Austurnets og það er Tjörvi Hrafnkelsson sem leiðir verkefnið en Freyr Ævarsson er kúlu eigandi. Fjöldi annarra kemur svo að verkefninu.

Kynning verður á verkefninu miðvikudaginn 12 maí klukkan 12:00 á Hótel Héraði.

 
Starfskynning nemenda frá Hallormsstaðaskóla

Hópur drengja frá Hallormsstaðaskóla hefur nú tvívegis komið í starfsþjálfun og kynningu til Austurnets. Ágúst Valgarð tók á móti þeim í bæði skiptin. Eftir að hafa spjallað um það sem Austurnet er að gera og í hverju starf tölvunarfræðings er fólgið var farið í að útbúa lítinn leik á netinu til að kynna fyrir strákunum innviði þess að forrita.

Smelltu hér til að prófa leikinn

 
Austurnet í Fjarðabyggð

Nú er Austurnet komið með starfsstöð í Fjarðabyggð, nánar tiltekið á Reyðarfirði. Húsnæðið er að Búðareyri 7 í sama húsi og Íslandsbanki og Austurglugginn. Það er Ásta Kristín Sigurjónsdóttir sem verður fyrsti aðilinn í starfsstöðinni, en hún er nýjasti verktaki Austurnets . Auk þess er aukastarfsstöð á staðnum sem að Austurnets fólk getur nýtt sér ef það er á ferðinni.

Það hefur verið markmið frá stofnun Austurnets að koma upp starfsstöð í Fjarðabyggð, en ekki hafa reynst forsendur til þess fyrr en núna.

Það er von okkar að starstöðin á Reyðarfirði eigi eftir að vaxa og dafna

 
Nýr vefur Gídeonfélagsins á Íslandi
Ágúst Valgarð Ólafsson og Unnar Erlingsson hafa undanfarið unnið að uppsetningu nýs vefs Gídeon á Íslandi, www.gideon.is. Vefurinn er unnin í Joomla og með ýmsum kerfiseiningum sem fást fyrir Joomla. Austurnet óskar Gídeon á Íslandi til hamingju með nýjan vef.