|
Nú er Austurnet komið með starfsstöð í Fjarðabyggð, nánar tiltekið á Reyðarfirði. Húsnæðið er að Búðareyri 7 í sama húsi og Íslandsbanki og Austurglugginn. Það er Ásta Kristín Sigurjónsdóttir sem verður fyrsti aðilinn í starfsstöðinni, en hún er nýjasti verktaki Austurnets . Auk þess er aukastarfsstöð á staðnum sem að Austurnets fólk getur nýtt sér ef það er á ferðinni. Það hefur verið markmið frá stofnun Austurnets að koma upp starfsstöð í Fjarðabyggð, en ekki hafa reynst forsendur til þess fyrr en núna. Það er von okkar að starstöðin á Reyðarfirði eigi eftir að vaxa og dafna
|