Austurnet
Heim
Austurnet verðlaunað PDF Prenta Rafpóstur

verdlaunff.jpgFramfarafélag Fljótsdalshéraðs og Landsbanki Íslands hafa undanfarin ár veitt einu fyrirtæki á svæðinu viðurkenningu fyrir frumkvæði, nýjungar eða annað það sem til framfara má telja. 

Verðlaunin voru afhent á Ormsteiti eins og undanfarin ár og varð Austurnet þessa heiðurs aðnjótandi í þetta skiptið. 

Það er ungu fyrirtæki mikils virði að hljóta viðurkenningu samfélagsins á að vel hafi til tekist.  Við þökkum því kærlega fyrir okkur og vonum að við getum haldið áfram á sömu braut.

Þórunn Hálfdanardóttir og Tjörvi Hrafnkelsson tóku við verðlaununum fyrir hönd Austurnets.

 
< Fyrri   Næsti >