|
Opnar lausnir eru hugbúnaður sem þarf ekki að greiða leyfisgjöld af og grunnurinn ( forritunarkóðinn ) er aðgengilegur til smíða ofan á. Opnar lausnir ( open source ) eru að ryðja sér til rúms í æ ríkara mæli. Sem dæmi um útbreiddan, opinn hugbúnað má nefna Linux stýrikerfið, OpenOffice hugbúnaðarvöndulinn, vefumsjónarkerfið Joomla, sem þessi vefur er gerður í, Mozilla Firefox-vafrann og margt fleira. Austurnet mun leggja áherslu á opnar lausnir við að leysa verkefni þeirra sem til okkar leita, með það fyrir augum að auka sveigjanleika og lækka kostnað viðskiptavina.
|