Heim arrow Verkefnin arrow Rjúpan er komin í loftið !
Rjúpan er komin í loftið ! PDF Prenta Rafpóstur

vefrjupa.jpgÁ föstudaginn var opnaði nýr vefur www.rjupa.is , en þar geta rjúpnaveiðmenn keypt sér veiðileyfi á afmörkuðum svæðum í eigu Skógræktar ríkisins.  Þetta er tilraunaverkefni, sprottið upp ú lokaverkefni Sigrúnar Víglundsdóttur, nema í tölvunarfræði við Háskólann í  Reykjavík.  Austurnet ehf og Skógráð ehf voru bakhjarlar Sigrúnar í verkefninu og þegar fékkst styrkur til að gera vefinn að alvöru verkefni, var Sigrún fengin til að vinna verkið.  Auk hennar hafa verktakar Austurnets, starfsmenn Skógræktar ríkisins og Skógráðs komið að þessari vinnu.

Á fyrstu 3 dögunum seldust nokkrir tugir veiðileyfa og því full ástæða til bjartsýni með að þessi vefur eigi eftir að stækka og gagnast fleiri landeigendum og veiðimönnum en nú er.

Auk veiðileyfasölunnar er að finna ýmsan fróðleik um rjúpuna, reglugerðir, uppskriftir og góðar ábendingar af ýmsu tagi.  Á vefnum eru einnig ljósmyndir sem fengnar eru annars vegar frá Hrafni Óskarssyni á Tumastöðum í Fljótshlíð og hins vegar Þórunni Hálfdanardóttur á Hallormsstað.

 
< Fyrri   Næsti >

Blogg

Austurnet bloggar