Austurnet
Heim
Austurnet PDF Prenta Rafpóstur

Austurnet er klasafyrirtæki byggt í kringum samfélag fólks sem hefur tileinkað sér fjölbreytta þekkingu á lausnum fyrir Internetið með einum eða öðrum hætti.  Einnig hefur námsskeiðahald verðið ofarlega á verkefnalistanum.

Innan hópsins eru tölvunar- og kerfisfræðingar, grafískir hönnuðir, kennarar og fólk með menntun og reynslu í rekstri fyrirtækja.   Við erum alltaf á höttunum eftr fólki sem hefur áhuga og kunnáttu á vefsíðugerð, forritun, grafískri hönnun, tölvukennslu og flestu því sem við kemur upplýsingatækni almennt.  Hér á síðunni er skráningarform þar sem áhugasamir geta skráð sig inn.

Sumir hafa af viðkomandi þekkingu fulla atvinnu sem einyrkjar eða fyrirtæki meðan aðrir sinna því í hlutastarfi með annarri vinnu. Hægt er að hafa samband beint við viðkomandi aðila og fá hann til að vinna fyrir sig verkefni, en um stærri verkefni er að ræða þá getur forsvarsaðili Austurnets tengt saman einstaklinga til að vinna viðkomandi verkefni.
 
Næsti >