Austurnet
Heim
OpenOffice PDF Prenta Rafpóstur

Tölvur er til l lítils ef ekki er í þeim hugbúnaður.  Öll könnumst við við forrit eins og Word og Excel frá Microsoft og getum illa án þeirra verið ef við erum að vinna á tölvurnar okkar. Þessi hugbúnaður er hins vegar töluvert dýr og því mikið um að hann sé notaður í leyfisleysi, þar sem mörgum finnst það of dýrt að kaupa hann.

En það er til önnur leið.  Á netinu má finna hugbúnað sem heitir OpenOffice og hann er ókeypis.  Þú getur sótt hann á netið og mátt setja hann upp á eins margar tölvur og þú vilt án endurgjalds.  Forritin geta lesið, uppfært og vistað skjöl úr Microsoft Office pakkanum og því engin hætta á að menn einangrist þó þeir noti OpenOffice.

 
< Fyrri   Næsti >