Austurnets húsnæðið
Austurnet hefur leigt húsnæði að Miðvangi 1-3 frá 2008 til dagsins í dag, en húsið sjálft er í daglegu tali kallað "Nýjan". Fyrst var leigt 70 m2 húsnæði áefstu hæð sem er í eigu Urtusteins ehf eða frá apríl 2008 fram í júlí 2009.Frá júlí 2009 hefur Austurnet verið með 145 m2 húsnæði á sömu hæð að Miðvangi 1-3 á leigu, en eigandi þess er Heimir Sveinsson á Egilsstöðum. Austurnet leigir enn þetta húsnæði sem hefur reynst afskaplega vel og hentar ágætlega fyrir starfsemina.
Í maí 2010 tekur Austurnet svo á leigu 75 m2 húsnæði á leigu sem er við hlið þess þegar er í leigu. Það húsnæði hýsti áður Heilbrigðisstofnun Austurlands ( HAUST ), sem þá fluttist í annað húsnæði í Vísindagörðunum á Egilsstöðum. Þetta húsnæði er einnig í eigu Urtusteins ehf, þó ekki sé þetta það sama og var leigt 2008.
Í apríl 2011 gerir Austurnet svo samning við Urtustein um að leigja aftur 70 m2 húsnæðið, sem var leigt 2008.
Í apríl 2011 voru svo gerðir þriggja ára samningur um það húsnæði sem Austurnet er nú með á leigu, sem samtals telja tæpa 300 m2. Samningarnir eru gerðir við tvo leigusala, Urtustein ehf og Heimi Sveinsson, en báðir samningar renna út í mars 2014
Önnur starfsemi í Nýjunni
Neðsta hæðin:Hérðasprent á alla neðstu hæðina, þar sem er rekin öflug prentsmiðja, en Hérðasprent er eitt elsta starfandi fyrirtæki á Egilsstöðum og hefur starfað óslitið frá 1972.
Jarðhæðin:
Á jarðhæðinni eru meðal annars útibú Íslandsbanka og Sjóvá. Þar er líka starfssemi Upplýsingamiðstöðvar Austurlands sem er rekinn af Markaðsstofu Austurlands. Frá Júní 2010 hefur svo verkið handverks og hönnunarverslunin 'Hús Handanna'. Mikið líf er á á miðhæðinni yfir sumartímann, því þar koma velflestir ferðamenn við sem eiga leið um Austurland.
Efsta hæðin:
Á efstu hæðinni eru fjölmörg fyrirtæki auk Austurnets. Bókhaldsstofa Þórhalls Haukssonar er þar og hefur verið frá því 2007. Ferðaskrifsstofa Austurlands hefur verið þar með starfssemi frá september 2009. Hugbúnaðarfyrirtækið Rational Network hefur verið með starfssemi frá júlí 2009. Auglýsingastofan Augasteinar ehf hafa verið staðsettir frá apríl 2008, rétt eins og HugurAx hf sem hefur haft starfsstöð. Frá apríl 2011 hefur svo nýtt fyrirtæki AN Lausnir ehf hafið starfssemi frá og með september 2011 mun nýtt fyrirtæki Austurför ehf hefja þar starfssemi.
